Erlent

Formaður Demókrataflokksins í Arkansas skotinn til bana

Bill Gwatney.
Bill Gwatney. MYND/Reuters

Bill Gwatney, formaður Demókrataflokksins í Arkansas-fylki, lést í kvöld af sárum sínum eftir að hafa verið skotinn af byssumanni við höfuðstöðvar flokksins í Little Rock.

Maðurinn sem skaut Gwatney var seinna skotinn til bana á flótta undan lögreglunni.

Engar frekari upplýsingar hafa borist um ástæður skotárásarinnar eða hvort fleiri hafi slasast.

Bill Clinton, fyrrverandi ríkisstjóri Arkansas, og eiginkona hans, Hillary Clinton, öldungadeildarþingmaður demókrata, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau segjast miður sín vegna fregnanna en þau eru góðir vinir Gwatney.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×