Erlent

Óskýr svör Írana

William Burns aðalsamningamaður Bandaríkjamanna á fundinum.
William Burns aðalsamningamaður Bandaríkjamanna á fundinum.

Stjórnvöld í Íran gáfu óskýr svör um framhald kjarnorkuáætlunar sinnar á fundi í Genf í dag. Þrýst er á Írana að hætta auðgun úrans en Íranar segja það ekki koma til greina.

Menn voru bjartsýnir fyrir fundinn í Genf og eins vegna vísbendinga um að sambúð Írans og Bandaríkjanna færi batnandi. Til marks um þetta þá hefur olíuverð lækkað um 13 prósent á einni viku. Fulltrúar þeirra ríkja sem sitja í Öryggisráði Sameinuðuþjóðanna sátu fundinn í Genf um kjarnorkuáætlun Írana, ásamt fulltrúa Þjóðverja.

Javier Solana utanríkismálastjóri Evrópusambandsins stýrði fundinum, en á honum var einnig fulltrúi Bandaríkjanna. Sambúð Írans og Bandaríkjanna hefur ekki verið upp á marga fiska síðan árið 1979, þegar Khomeni erkiklerkur snéri heim úr útlegð frá Frakklandi og tók völdin i landinu. Síðar það sama ár tóku stúdentar sendiráð Bandaríkjanna í Tehran og héldu um 50 starfsmönnum þar í gíslingu í 444 daga.

Öryggisráð Sameinuðuþjóðanna hefur þrívegis samþykkt refsiaðgerðir á Íran, hætti þeir ekki að auðga úran. Íranar segjast ekki ætla að nota úranið í vopn, heldur í friðsamlegum tilgangi. Fundurinn í dag var vinsamlegur og framhald verður á viðræðunum við Írana eftir tvær vikur að sögn utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Það er ef til vísbending um að eitthvað hafi þokast í samkomulagsátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×