Ljósmæður og HugGarður leita til ríkissáttasemjara 29. apríl 2008 22:09
Svo virðist sem kjaradeilur margra háskólamenntaðra stétta séu að harðna því í morgun ákvað samninganefnd HugGarðs og Ljósmæðrafélags Íslands að vísa kjaraviðræðum við samninganefnd ríkisins til ríkissáttasemjara. Aðildarfélög HugGarðs eru: Félag íslenskra fræða - kjaradeild, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Útgarður, félag háskólamanna. Viðræður þeirra hafa staðið frá 18. mars og renna kjarasamningar félaganna við ríkið út á miðnætti annað kvöld. Félögin tvö höfnuðu tilboði samninganefndar ríkisins í morgun en það var lagt fram fyrir tveimur vikum. Samkvæmt heimasíðu HugGarðs hljóðaði tilboðið upp á þriggja og hálfs árs kjarasamning með þremur krónutöluhækkunum á laun þ.e. 18 þúsund krónur 1. maí í ár, 13.500 krónur 1. maí 2009 og 6.500 krónur 1. janúar 2010 ásamt hækkunum á persónuuppbótum. ,,Félögin höfnuðu tilboði SNR og lýstu yfir vilja til að semja til eins árs án forsenduákvæða ásamt prósentuhækkunum á launatöflu. Ennfremur mótmæltu stéttarfélögin þeirri miklu skerðingu á kaupmætti félagsmanna sem í tilboðinu fólst. Í ljósi þess hve mikið bar á milli samningsaðila ákvað samninganefnd HugGarðsfélaga og Ljósmæðrafélags Íslands að vísa viðræðum til ríkissáttasemjara og var það gert nú um hádegið. Ríkissáttasemjari hefur boðað deiluaðila til fundar á mánudaginn kl. 12:15," segir á heimasíðunni. Fyrr í dag greindi Vísir frá því að slitnað hefði upp úr viðræðum hjúkrunarfræðinga og ríkisins og fer sú deila að líkindum til ríkissáttasemjara.
Tengdar fréttir Alvarleg staða í samningaviðræðum hjúkrunarfræðinga og ríkis Samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefnd ríkisins ákveða í dag eða á morgun hvort kjaradeilu þeirra verði vísað til ríkissáttasemjara. Alvarleg staða er komin upp í málinu að sögn hjúkrunarfræðinga. 29. apríl 2008 17:51 Segir engan vilja til að koma til móts við hjúkrunarfræðinga „Ég sé ekkert annað í stöðunni en að deilan fari til ríkissáttasemjara þó að það sé ekki búið að formlega vísa henni þangað. Það er enginn vilji til að koma til móts við okkar sjónarmið 29. apríl 2008 19:07 Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira
Alvarleg staða í samningaviðræðum hjúkrunarfræðinga og ríkis Samninganefndir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefnd ríkisins ákveða í dag eða á morgun hvort kjaradeilu þeirra verði vísað til ríkissáttasemjara. Alvarleg staða er komin upp í málinu að sögn hjúkrunarfræðinga. 29. apríl 2008 17:51
Segir engan vilja til að koma til móts við hjúkrunarfræðinga „Ég sé ekkert annað í stöðunni en að deilan fari til ríkissáttasemjara þó að það sé ekki búið að formlega vísa henni þangað. Það er enginn vilji til að koma til móts við okkar sjónarmið 29. apríl 2008 19:07