Erlent

Danskur gluggagægir handtekinn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lögregla á Norður-Jótlandi hefur haft hendur í hári sextán ára gamals gluggagægis sem verið hefur á ferð að næturlagi í bænum Hou upp á síðkastið.

Íbúar í húsi urðu varir við að einhver lá á gluggunum hjá þeim og höfðu samband við lögreglu sem mætti á svæðið með hunda. Röktu þeir slóð piltsins fljótt og örugglega og var hann handtekinn og foreldrar hans kallaðir til. Gluggagægirinn á yfir höfði sér kæru fyrir blygðunarsemisbrot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×