Dr. Spock í spinning 24. nóvember 2008 07:30 Saman í spinning. Dr. Spock og Gillzenegger elduðu grátt silfur í Eurovisionkeppninni í vor en sameinast nú í Sporthúsinu. Fréttablaðið/VALLI
Þeir Óttarr Proppé og Finni í Dr. Spock stigu í fyrsta sinn inn í líkamsræktarstöð þegar þeir kynntu sér aðstæður fyrir útgáfutónleika sína í Sporthúsinu. Gillzenegger skipuleggur giggið með þeim. Platan Falcon Christ með hljómsveitinni Dr. Spock er að koma út. Haldnir verða nýstárlegir útgáfutónleikar í Sporthúsinu í hádeginu á miðvikudaginn. Þar ætlar sveitin að spila í spinning-tíma. Sjálfur Gillzenegger, Egill Einarsson, hefur verið sveitinni innan handar við að skipuleggja giggið. „Já, þeir eru nú ekki beint vel tengdir í þessum geira svo ég hjálpaði þeim að læna þessu upp," segir Gillz. „Það var gaman að sjá þá koma hérna inn í Sporthúsið til að skoða aðstæður. Þeir hafa greinilega aldrei komið í líkamsræktarstöð áður og voru satt að segja hálf skelkaðir." Gillzenegger ætlar ekki að taka tímann að sér þótt auðvitað mæti hann og hjóli. „Ég er ekki harður í spinninginu enda kraftlyftingamaður. Valið stendur núna á milli tveggja ljóshærðra dama með júllur eða Danna, sem er snargeðveikur. Auðvitað væru júllurnar góðar upp á útsýnið en ég held ég splæsi samt í Danna. Hann er nógu geðveikur til að passa við Spockið." „Það verður mjög forvitnilegt að sjá hvernig spinningkennarinn heldur utan um þetta. Það er svo mikið um taktbreytingar hjá okkur," segir Finni, söngvari Dr. Spock. „Við ætlum auðvitað að spila fulla tónleika og búumst við miklum svita og brjálæði." „Okkur finnst óskiljanlegt að líkamsræktarsalir séu ekki fyrsta val tónlistarmanna þegar kemur að tónleikum," segir Óttarr Proppé, hinn söngvari sveitarinnar. „Hraust sál í hraustum líkama og allt það. Við teljum þetta fullkomna byrjun á „skítatúrnum" okkar sem mun standa fram á sunnudag." Gillzenegger segir mikinn áhuga á spinning-tónleikum Dr. Spock - „Það er meira að segja hringt frá öðrum líkamsræktarstöðvum. Við getum auðvitað ekki bannað fólki að koma."drgunni@frettabladid.is
Mest lesið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Lífið Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Lífið Rick og Morty á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Fleiri fréttir Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Sjá meira