Erlent

Eartha Kitt er látin

Söng- og leikkonan Eartha Kitt er látin 81 árs að aldri. Hún lést úr ristilkrabbameini á sjúkrahúsi í New York.

Eartha fæddist í Suður Karólínu árið 1927, hún varð heimsfrægt tákn glæsileika og munaðarlífs og ein af fjölhæfustu leikkonum Bandaríkjanna.

Hún sló í gegn í hlutverki „Kattarkonunnar" í sjónvarpsþáttaröð Adam West um Batman. Hún sló einnig í gegn með jólalaginu „Santa Baby". Lagði fór í gull á þessu ári og fékk hún afhenda gullplötu rétt áður en hún lést.

Einnig átti hún önnur lög sem slógu í gegn. Svo sem „Cést Si Bon," „Let´s Do It" og „Just an Old Fashioned Girl".

Eartha vann til tveggja Emmy verðlauna og var tilnefnd til þriggja á ferli sínum sem spannaði yfir sex áratugi. Hún var einnig tilnefnd til tveggja Tony og Grammy verðlauna.

Eartha sló í gegn þegar hún mótmælti Víetnamstríðinu kröftuglega á sjöunda áratugnum og hóf í kjölfarið að koma fram í Evrópu þar sem hún vann hug og hjörtu manna.

„Mesta afrek mitt var að lifa af í bransanum með því að gera það sem ég vildi gera, ekki með því að gera það sem aðrir voru að gera," sagði Kitt eitt sinn.

„Ég hélt mér bara við mitt og ég held að það sé ástæða þess að ég lifði af, ég fylgdi ekki straumnum heldur hélt mig við mitt."

„Áhorfendur eiga ekki að vita hversu hrædd ég er, feimnasta manneskja í heimi," lét hún einnig eitt sinn hafa eftir sér.

Fjölskylduvinurinn Andrew Freedman sagði að Frú Kitt hefði látist úr ristilkrabba en hún eyddi síðustu dögunum á sjúkrahúsi í New York. Krabbameinið kom upp fyrir um tveimur árum en því var hægt að halda í skefjum þar til það kom aftur upp nýlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×