Áttrætt skógarbeyki er tré mánaðarins 28. október 2008 10:01 Tréð skartar sínu fegursta nú á haustmánuðum.
Skógarbeyki frá fyrri hluta síðustu aldar er tré mánaðarins, að mati Skógræktarfélagi Íslands. Tréð stendur við Laufásveg 43. Hjónin Vigfús Guðmundsson og Sigríður Halldórsdóttir frá Engey bjuggu í húsinu frá árinu 1916 til dauðadags. Vigfús var búfræðingur og mikill áhugamaður um trjárækt. Hann gróðursetti fjölda trjáa í garði sínum, þeirra á meðan skógarbeykið. Það er nú 13 metrar á hæð og ummál þess 132 sentimetrar í 1,30 metra hæð frá jörðu. Í tilkynningu frá Skógræktarfélaginu um valið segir að Skógarbeyki sé hitakær trjátegund og sjaldgæf hér á landi. „Þekktustu beykitrén vaxa í Hellisgerði í Hafnarfirði, hlykkjótt en lagleg tré frá því um 1930 sem eru byrjuð að mynda fræ. Þá er eitt vel þekkt sunnan undir Miðbæjarskólanum, en tréð í garðinum Laufásvegi 43 teljum við vera það hæsta á landinu," segir í tilkynningunni. Í garðinum vex einnig 15-16 m hár garðahlynur og askur sem var gróðursettur árið 1928 og leiða má líkur að því að það ár hafi skógarbeykið einnig verið gróðursett. Því hallar töluvert inn í garðinn neðan til og er það vegna þrengsla í uppvexti, en á seinni árum hefur það breitt mikið úr sér. Húsið á Laufásvegi 43 á sér merka sögu. Jón Eiríksson steinsmiður byggði húsið árið 1901. Það er einingahús sem flutt var inn frá Noregi í svonefndum sveitserstíl, sem er byggingastíll timburhúsa sem ríkjandi var í Evrópu seinnihluta 19. aldar og vel fram á 20. öldina. Árið 1916 eignuðust þau Sigríður og Vigfús og bjuggu þar til dauðadags. Börn þeirra bjuggu í húsinu til 1994. Nokkrum árum síðar var búslóðin flutt í Árbæjarsafn enda að mestu óbreytt í áratugi og þykir gefa góða innsýn í heimili reykvískra borgara á fyrrihluta 20. aldar. Hluti búslóðarinnar er nú til sýnis í Árbæjarsafni. Núverandi eigendur Laufásvegar 43 eru Ragnhildur Þórarinsdóttir og Bergur Benediktsson. Skógarbeykið er ein af tíu tegundum beykis sem vaxa um alla mið- og sunnanverða Evrópu. Það er viðkvæmt fyrir vorfrostum og vindnæðingi og gerir töluverðar kröfur til hita á vaxtartímanum, vex til dæmis nær eingöngu syðst á Skandinavíuskaganum. Þá er svepprót talin mjög mikilvæg til að tréð nái góðum þroska. Það er laufmikið og myndar dimma og ríkjandi skóga. Afbrigði skógarbeykis er blóðbeykið með svartrauð laufblöð, það má sjá nokkuð víða í görðum, ma. við Laufásveg. Tréð heldur laufum sínum fram eftir vetri og ung tré gjarnan fram á vor. Auk þess sem skógarbeykið þykir mikil prýði í görðum og útivistarsvæðum á meginlandinu bæði stakt og í limgerði, hefur það lengi verið verðmætt skógartré, nær oft 30 metra hæð og verður 200 ára gamalt. Viðurinn er talinn afbragðs eldiviður og einnig mikið notaður í húsgagnasmíði og gólfklæðningar svo dæmi séu tekin. Aldinið er hneta sem er gott skepnufóður og einnig mannafóður í hallærum. Beyki óx hér á landi á hlýviðrisskeiðum í fjarlægri fortíð, fyrir 8-16 milljónum ára þegar landið var sennilega hluti af brú milli Evrópu og Ameríku. Skógræktarfélagið segir endurkomu beykisins nú vera fagnaðarefni, hlýnunin framundan, svo varasöm sem hún sé að öðru leyti, muni auka líkurnar á að beyki vaxi og dafni hér og verði hluti af skógarauðlind okkar í framtíðinni.
Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Sjá meira