Bogi reisir friðarkúlu 15. desember 2008 08:00 Bogi Jónsson á Hliði með friðarkúlu sína. MYND/Fréttablaðið/gva
Bogi Jónsson á Hliði á Álftanesi stendur illa fjárhagslega, eins og hér kom nýlega fram. Hann lætur það þó ekki slá sig út af laginu og hefur búið til friðarkúlu sem mun standa á landareign hans. „Fljótlega eftir að ég hætti að djúsa dreymdi mig draum sem kveikti þessa hugmynd,“ segir Bogi. „Mig dreymdi að ég væri að túlka á minn eigin hátt það að við erum öll íbúar í sömu íbúðinni, jörðinni okkar, þótt við innréttum herbergin okkar misjafnlega eftir smekk hvers og eins. Hugmyndin þróaðist í rólegheitum og svo má segja að friðarsúla Yókóar hafi endanlega sannfært mig um að ég ætti að láta drauminn rætast.“ Bogi ætlar að vígja kúluna 22. desember og vonar að fulltrúar sem flestra trúarhópa verði viðstaddir vígsluna. „Friðarkúlan er til afnota fyrir alla íbúa allra herbergja í íbúðinni okkar, jörðinni,“ segir Bogi. „Það eru raufar í henni sem ætlaðar eru til að fólk leggi inn óskir sínar um frið á jörð og betra líf. Svo biðjum við til almættisins, hvaða nafni sem við nefnum það, að hjálpa okkur við að láta óskina rætast ef hún er okkur til farsældar.“ Kúlan verður staðsett rétt við afleggjarann að Hliði. „Það þarf enginn að vera feiminn við að koma og létta á áhyggjum sínum í kúluna. Á þessum skemmtilegu tímum – eða hitt þó heldur – er margt vitlausara en að gera sér ferð í kyrrðina út á Álftanes. Ég mun setja öll þau trúartákn á kúluna sem ég get grafið upp og vona að hún megi verða sandkorn á vogarskál friðar og sátta í heiminum. Til þess að friður og sátt ríki í heiminum þarft þú einungis að fá eina manneskju til að verða til friðs: þig!“ - drg
Mest lesið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Fleiri fréttir Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Sjá meira