Lífið

OJ dæmdur 15 ára fangelsi

OJ Simpson.
OJ Simpson.

Ruðningskappinn O.J. Simpson var nú skömmu fyrir fréttir dæmdur í fimmtán ára fangelsi fyrir vopnað rán, líkamsárás og tilraun til mannráns í Las Vegas í fyrra. Hann á möguleika á náðun eftir sex ár.

Fyrir rétt rúmu ári réðust Simpson og félagi hans vopnaðir inn á hótelherbergi í Las Vegas. Þar ógnuðu þeir tveimur mönnum og rændu íþróttaminjagripum sem Simpson sagðist vera að endurheimta.

Þrettán ár eru síðan að Simpson var sýknaður af ákærum um að hafa myrt eiginkonu sína, Nicole, og vin hennar Ronald Goldman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.