Erlent

Ég hengi hann upp á eistunum sagði Putin

Óli Tynes skrifar
Nicolas Sarkozy og Vladimir Putin.
Nicolas Sarkozy og Vladimir Putin.

Vladimir Putin forsætisráðherra Rússlands var í miklum vígahug þegar stríðið við Georgíu stóð sem hæst.

Nicolas Sarkozy forseti Frakklands kom til Moskvu og reyndi að miðla málum.

Putin sagði meðal annars að Saakashvili forseti Georgíu ætti ekki gott í vændum.

Frakklandsforseti reyndi að róa Putin niður með því að svína til George Bush forseta Bandaríkjanna. Samtal þeirra var var eftirfarandi:

-Ég hengi Saakashvili upp á eistunum.

-Hengir hann ?

-Hví ekki? Ameríkanar hengdu Saddam Hussein.

-Já, en vilt þú vera eins og Bush forset?

Hér þagði Putin nokkra stund áður en hann svaraði;

-Já, það er góður punktur hjá þér.

Svona eru semsagt heimsmálin afgreidd þegar leiðtoganir talast við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×