Teflir almættinu fram gegn eignarskattinum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. júlí 2008 07:18 Myndin tengist ekki þessari frétt.
Auðmaður í Lake Bluff nálægt Chicago fann þægilega smugu til að losna undan sex milljóna króna eignarskatti á 600 fermetra glæsivillu sína. George Michael, þó ekki tónlistarmaðurinn góðkunni, þótti fullmikið af því góða að greiða 80.000 bandaríkjadali í eignarskatt af glæsilegu húsnæði sínu í úthverfi Chicago. Hann gerði sér því lítið fyrir og nældi sér í guðfræðigráðu í fjarnámi á Netinu. Það næsta sem nágrannar hans vissu var að stærðarinnar kross var kominn utan á hús nágranna þeirra og það var ekki lengur skráð sem íbúðarhúsnæði heldur armenska kirkjan í Lake Bluff, guðshús þar sem séra George Michael þjónaði fyrir altari - og bjó reyndar í kjallaranum ásamt fjölskyldu sinni en slíkt er fullkomlega löglegt og heitir þá einfaldlega prestsetur. Bæjarstjórnin stendur nú á öndinni yfir því að verða af sex milljóna króna eignarskatti frá þessum kunna broddborgara sveitarinnar en getur svo sem lítið annað gert en leggjast á bæn. Þó eygir bærinn þá von að geta sektað Michael um 115.000 dali, mun hærri upphæð en eignarskatturinn, fyrir að hefja rekstur guðshúss án allra leyfa. En slíkt kostar langvinn og dýr réttarhöld ásamt málsrannsókn og síðast þegar fréttist voru vegir guðs órannsakanlegir.
Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Fleiri fréttir Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Sjá meira