200 diskum stolið af Klingenberg 29. nóvember 2008 03:00 „Þú ert frábær“ Sigríður segist nú passa sig að læsa hjá sér, en vonar að sjálfshjálpardiskar hennar, Þú ert frábær, komist í dreifingu með einum eða öðrum hætti fyrst þeim var stolið. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta er náttúrlega mikill missir og fjárhagslegt tjón," segir Sigríður Klingenberg spákona sem lenti í því að 200 geisladiskum var stolið af heimili hennar. Diskarnir sem um ræðir voru fyrsta upplagið af nýjum sjálfshjálpardiski Sigríðar, Þú ert frábær, sem hún framleiddi sjálf í þeim tilgangi að hressa upp á fólk. „Þetta voru diskar sem ég var að klára að pakka og lágu á stofuborðinu hjá mér. Það eru liðnar um þrjár vikur síðan, en ég trúði bara ekki strax að þeim hefði verði rænt og vonaði að það væri önnur skýring á þessu," segir Sigríður, en ekki alls fyrir löngu var Playstation 3 tölvu og flakkara stolið af heimili hennar. Auk diskanna hvarf einnig kristalskúla frá Prag sem Sigríður hélt mikið upp á. „Kannski að þjófurinn vilji skyggnast inn í framtíðina, en mér finnst merkilegt að einhver skuli vera á svo miklum bömmer að hann þurfi 200 diska til að hressa sig við. Viðkomandi hlýtur allavega að hafa fundist hann athyglisverður," segir Sigríður og brosir, en viðurkennir að kostnaður við framleiðslu diskanna hafi verið um 400.000 krónur. „Ég er komin með annað upplag núna, en ég vona að diskarnir sem var stolið fari samt í dreifingu með einum eða öðrum hætti og breyti lífi þeirra sem kaupa þá. Ég ber engan kala til neins, en mér þætti vænt um að vita hvar þetta er niðurkomið og myndi ekki vera með nein eftirmál ef ég fengi ábendingar um það," segir Sigríður sem vonast til að fá upplýsingar í gegnum heimasíðu sína www.klingenberg.is.
Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fleiri fréttir Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Sjá meira