„Fáðu þér erlent lán gamli minn ef þú höndlar smásveiflur" 11. desember 2008 13:44 „Gamli er kominn á strætó eigum við að ræða það eitthvað?" segir Gillz.
Vísir hafði samband við Egil „Gillzenegger" Einarsson til að kanna hvernig hann hyggst takast á við erlendu lánin sem hvíla á bílunum hans, hljómsveitina Mercedes Club og fyrirtækið hans Fjarþjálfun.is sem er að slá í gegn á Íslandi. „Fáðu þér erlent lán gamli minn ef þú höndlar smásveiflur, sagði bílasalinn við mig," útskýrir Gillzenegger aðspurður um erlendu bílalánin sem hvíla á bílunum hans. Gillz og Aron Pálmarsson. MYND/Fréttablaðið. „Smásveiflan varð aðeins meiri sveifla en það meikaði sens þá. Bílasalanum líður ekki vel. Hann sefur ekki vel núna," bætir Gillzenegger við. Hvernig tekst þú á við efnahagsástandið? „Með bullandi jákvæðni. Ég hef aldrei verið að æsa mig eitthvað yfir þessu ástandi." MYND/Fréttablaðið. „Ég á félaga sem eru fasteignasalar og bankamenn sem voru eins og kvikmyndastjörnur fyrir ári og ég hef tekið mark á þeim í gegnum tíðina." „Í staðinn fyrir að láta ástandið draga mig niður í þunglyndi þá trúi ég að þetta reddast," svarar Gillzenegger. Hvað með hljómsveitina Mercedes club er hún hætt? „Við ákváðum að gefa fólki smá „time out". Fólk gat ekki opnað blöð án þess að sjá skítug andlitin okkar," svarar Gillzenegger. MYND/Fréttablaðið. „Nú er ég aðallega að einbeita mér að fjarþjálfuninni. Þar færðu jólagjöfina í ár sem eru gjafakort. Þá fær fólk fáránlega sexí og mjög smekklegt gjafabréf með mynd af mér þar sem ég er helmassaður og töff." „Ég byrjaði að prófa mig áfram með fjarþjálfun fyrir tveimur árum. Ég var lengi búinn að hugsa hvernig ég gæti gefið fólki aðhald án þess að taka handlegginn af því," segir Gillzenegger. MYND/Fréttablaðið. En hittir þú persónulega viðskiptavinina? „Já við hittumst og ég rölti með hverjum og einum í gegnum salinn og ég kenni þeim og sýni fólki hvað það á að gera með réttri tækni og leiðrétti það þegar það byrjar. Síðan fær hver og einn nákvæmt prógram sem er byggt á líkamsræktarforriti í gegnum tölvupóst." „Ég er í stöðugu internetsambandi við fólk sem sendir mér matardagbók og ég drulla yfir hana ef hún er ekki í lagi og laga hana. Eftir fjórar vikur kemur fólk aftur og ég mæli það því ummál er áræðanlegra en vigtin. Þá sé ég hvað það er að gera. Þá athuga ég hvort það er að fara niður í ummáli og ef svo er þá er fólk á góðri leið." „Þetta virkar. Af hverju ættir þú að fara í einkaþjálfun fyrir 40 þúsund ef þú vilt ná betri árangri fyrir 10 þúsund?" MYND/Fréttablaðið. „Ég hitti alla í Sporthúsinu og sýni æfingarnar sem fólk gerir svo í líkamsræktarstöðinni sinni eða heima í bílskúr. Ég er með fólk á hverri einustu líkamsræktarstöð á landinu." „Þú getur verið hvar sem er. Bara þar sem þér líður vel. Það góða við fjarþjálfunina er að fólk þarf ekki að hugsa og nær góðum árangri. Ég er búinn að finna formúluna," segir Gillzenegger sem útskrifast sem íþróttafræðingur á næsta ári frá Háskóla Reykjavíkur. Skoða fjarthjalfun.is.
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira