Erlent

Hátt í 60 hafa farist í flóðum í Jemen

Að minnsta kosti fimmtíu og átta hafa látið lífið í flóðum í Jemen eftir að hitabeltisstromur gekk yfir landið. Tala látinna kann að reynast hærri þar sem margra er enn saknað. Þúsundir eru heimilislausir eða innilokaðir eftir flóðin. Mestar skemmdir urðu í einum stærsta bæ landsins, Hadramut, þar sem stormurinn fór yfir á fimmtudaginn. Erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargögnum til fólks þar sem vegir fóru víða í sundur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×