Afturendi á atkvæðaveiðum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 14. apríl 2008 15:15 Ítölsk nunna skilar atkvæði sínu. Kaus hún D'Abbracio? MYND/AP
Ítalska klámstjarnan Milly D´Abbraccio fer ótroðnar slóðir í baráttu sinni um sæti í borgarráði Rómaborgar og flaggar nú öðrum enda en almennt blasir við kjósendum af kosningaspjöldum - nefnilega afturenda sínum. „Fólk hefur engan áhuga á andlitum frambjóðendanna lengur," segir D´Abbraccio, „ég er skutur Jafnaðarmannaflokksins." Meðal efstu mála á stefnuskrá D´Abbracio er að opna rauða hverfið „Love City" í borginni eilífu og bjóða þar upp á nektarklúbba, kynræn diskótek og kynlífsverslanir. Hverfið yrði einungis steinsnar frá Vatíkaninu, helgasta véi kaþólsku kirkjunnar. „Þetta ætti bara að vera sætt og snyrtilegt hverfi, ekkert vændi," segir D´Abbracio og telur sig höfða til stórs hóps kjósenda með þessu stefnumáli sínu sem vart hlyti brautargengi í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar. Ítalir ganga að kjörborðinu í gær og í dag og kjósa hvort tveggja til þings og sveitarstjórna. Flaggskip Jafnaðarmannaflokksins í Róm, sem á að baki stórleik í kvikmyndum á borð við „The Kiss of the Cobra" og „Imperial Nymphomaniac", óttast ekki reynsluleysið í hörðum heimi stjórnmálanna og bendir á að hún hafi nú leikið þingkonu í stórvirkinu „L´Onorevole" með glæsibrag. Væntanlega verður ljóst í fyrramálið hvort kjósendur veiti D'Abbracio og bossa hennar brautargengi. Hvernig skyldi formaður Norðurbandalagsins, Umberto Bossi, auglýsa sitt framboð? Reuters greindi frá.
Mest lesið Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Lést í sprengingunni Innlent Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Erlent Robert Mueller er látinn Erlent Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Innlent Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Innlent Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Innlent Fleiri fréttir Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Sjá meira