Erlent

Páfinn í París

Rúmlega 200 þúsund manns mættu til að hlýða á Benedikt páfa sextánda í París í Frakklandi í morgun. Páfi er í fjögurra daga heimsókn til Frakklands, sinni fyrstu frá því hann varð páfi árið 2005.

Miklar umræður hafa spunnist í landinu í kringum komu hans. Samkvæmt frönskum lögum og hefð er algjör aðskilnaður ríkis og kirkjustofnana, en Sarkozy forseti hefur lýst þeirri skoðun sinni að trúarbrögð eigi að fá aukna hlutdeild í frönsku þjóðlífi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×