Afskriftir á Kaupþingslánum - Fráleitt að tala um refsiverð brot 6. nóvember 2008 10:53 Brynjar Níelsson segir fráleitt að tala um að hluthöfum hafi verið mismunað.
Það er óviðeigandi að yfirmaður ákæruvalds sé að velta því fyrir sér opinberlega hvort hinir eða þessir séu sekir um eitthvað. Þetta segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður um viðtal við Helga Magnús Gunnarsson í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær. Þar velti Helgi Magnús fyrir sér refsiábyrgð manna vegna afskrifta á lánum tengdum kaupréttasamningum hjá starfsmönnum bankanna. Brynjar segir óviðeigandi að saksóknari tjái sig með þessum hætti þegar verið er verið að ræða um tiltekin mál. Brynjar segir að allar vangaveltur manna um að refsiverð brot hafi átt sér stað vera á villigötum. Það sjáist vel ef menn skoði gögnin. Ekki sé um að ræða mismunun gagnvart hluthöfum og allt tal um refsiábyrgð sé fráleitt. „Ég held að menn séu bara búnir að gleyma hvernig þetta byrjaði og umræðunni þá," segir Brynjar. Hann bendir á að hluthafar hafi samþykkt að starfsmenn hefðu ekki persónulega ábyrgð af kaupum sínum í hlutabréfum. Það sé ekki hægt að tala um mismunun gagnvart hluthöfum þegar hluthafar hafi sjálfir samþykkt þennan mismun á aðalfundi 2004. „Upphaflega höfðu þessir starfsmenn kaup- og sölurétt og sölurétturinn tryggði þá fyrir því að þeir færu alltaf skaðlausir út úr þessu," segir Brynjar. „Með þessu sölurétti voru starfsmenn tryggir fyrir því að þeir gætu þá selt þegar komin var hætta. Þá gátu menn bara selt og borgað skuldina. Það væri öðruvísi ef það lægi ekki fyrir," segir Brynjar. Hann segir að síðan hafi sölurétturinn verið tekinn af en eftir hafi staðið samkomulag um að starfsmenn myndu mjög takmarkaða ábyrgð bera. Þetta samkomulag sé allt í samræmi við samþykktir aðalfundarins. „Menn eru bara með þessari ráðstöfun 25. September að fara eftir þessari ráðstöfun á sínum tíma," segir Brynjar. Brynjar segir að menn geti auðvitað gagnrýnt þetta fyrirkomulag sem hafi verið gert árið 2004 og það hafi raunar verið gagnrýnt mikið á sínum tíma. En þetta fyrirkomulag hafi verið hluti af launakjörum manna á sínum tíma, sem menn hafi greitt skatta af. Þessi laun hafi síðan orðið að engu.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira