Sænsku kjötbollurnar hækka ekki 6. nóvember 2008 10:49
Verð á sænskum kjötbollum, kryddbökuðum laxi, morgunrúnnstykkjum, grænmetisbuffum og fleira gotteríi í veitingastað IKEA hækkar ekki að sinni, þó vöruverð í versluninni hækki um 25% að meðaltali á næstu dögum. „Það hækkar ekkert á veitingastaðnum, allavega að svo komnu máli," segir Þórarinn H. Ævarsson framkvæmdastjóri IKEA á Íslandi. „Hann er svolítið heilagur fyrir okkur þessi veitingastaður." Þórarinn segir það að þurfa að hækka verðin í versluninni vera meiriháttar áfall. „Þetta var mjög erfið ákvörðun. Það má segja að allt hafi verið reynt til að forðast þetta." Vöruverð fyrir næsta ár er ákveðið á vorin. Þórarinn segir greiningardeildir þá hafa gefið til kynna að krónan myndi jafna sig á árinu, en reyndin hafi eins og flestir vita verið allt önnur. Það sé ekkert launungarmál að greitt hafi verið með rekstrinum undanfarið. Sú aðgerð að hækka verðin er svo ekki ókeypis. Áttatíu þúsund verðmiðar eru í versluninni, og fjöldi stórra skilta með verðmerkingum sem hanga úr loftinu. Þórarinn segir það muni taka tíu daga að breyta öllum verðmerkingum, og kosta tugi milljóna. „Það er meiriháttar verk að breyta verðunum. Maður gerir það ekkert að gamni sínu.
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Sjá meira