Erlent

Handteknir eftir innbrot og morð

Fimm Rúmenar eru nú í haldi lögreglu á Suðaustur-Jótlandi, grunaðir um að hafa myrt 76 ára gamlan mann þegar þeir brutust inn til hans í byrjun október.

Maðurinn og kona hans voru í fastasvefni þegar innbrotið átti sér stað. Innbrotsþjófarnir bundu konuna en til átaka kom milli þeirra og mannsins sem lyktuðu með því að hann lést. Þjófarnir höfðu á brott með sér skartgripi og vopn. Fjórir menn voru handteknir skömmu eftir atburðinn en prófanir á erfðaefni þeirra leiddu í ljós að þeir höfðu ekki átt hlut að máli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×