Segja ekkert nýtt hafa verið í auglýsingu Obama 30. október 2008 12:42
Barack Obama borgaði fjórar milljónir bandaríkjadala til að koma á framfæri boðskap sínum í hálftíma sjónvarpsauglýsingu á besta sýningartíma á sjö sjónvarpsstöðvum í gærkvöldi. Stjórnmálaskýrendur segja ekkert nýtt hafa komið fram í máli demókratans. Kostnaðurinn vegna birtingarinnar er fjórar milljónir bandaríkjadala, jafnvirði hálfs milljarðs króna á gengi Seðlabankans í morgun, og þá er ótalið hvað kostaði að gera hana. Auglýsingin var sýnd á þremur af fjórum stóru sjónvarpsstöðvunum, CBS, NBC og Fox, og fjórum kabalstöðvum. Kvikmyndagerðarmaðurinn Davis Guggenheim leikstýrði auglýsingunni en hann er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt heimildarmyndinni An Inconvenient Truth fyrir forsetaframbjóðandann fyrrverandi Al Gore. Óvenjulegt er að forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum fari þessa leið og þykir stjórnmálaskýrendum þetta til marks um hversu vel Obama og hans fólki hafi gengið að safna fé í framboðið. Stjórnmálaskýrendur segja ekkert nýtt hafa komið fram í auglýsingunni. Hann hafi endurtekið loforð um skattalækkanir fyrir lágtekjufjölskyldur og fyrirtæki sem ráði Bandaríkjamenn til vinnu og að hann ætlaði að afnema skattaívilnanir til fyrirtækja sem flytji störf úr landi. Yfir ræðu Obama voru birtar myndir af honum í kosningabaráttunni. Auglýsingunni lauk með beinni útsendingu frá kosningafundi í Flórída, einu lykilríkjanna í báráttu Obama við repúblíkanann John McCain. Þar kom Obama fram með Bill Clinton fyrrverandi forseta. Óvíst hefur verið talið að Clinton styðji Obama með heilum hug eftir að kona hans Hillary laut í lægra haldi fyrir honum í hatrammri baráttu um útnefningu Demókrataflokksins fyrr á þessu ári. Hvað sem þeim vangaveltum líður virtist fara vel á með flokksbræðrunum.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira