Ósanngjarnt að niðurskurðurinn skuli bitna á börnum Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. desember 2008 20:00 Frá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans við Dalbraut.
Það er ákaflega ósanngjarnt að niðurskurður á fjárlögum skuli bitna á börnum sem glíma við geðraskanir, segir Ingibjörg Karlsdóttir, formaður ADHD samtakanna. „Vegna þess að þjónustu við þennan hóp hefur verið mjög ábótavant um árabil," segir Ingibjörg. Vísir greindi frá því í gær að til stæði að leggja niður göngudeildarþjónustu barnageðlæknisins á Akureyri vegna niðurskurðar á fjárlögum. Hann er eini starfandi barnageðlæknirinn utan höfuðborgarsvæðisins. „Það sem stóð til var að efla þjónustuna fyrir framtíðina. Það var í pípunum," segir Ingibjörg. Hún segir að nefnd sem starfaði á vegum félagsmálaráðuneytis hafi unnið skýrslu um úrbætur í málefnum barna með athyglisbrest og ofvirkni. Samkvæmt fjárlögum hafi átt að koma þessum tillögum í framkvæmd í áföngum og staðið hafi til að ráðstafa 34 fjórum milljónum í verkefnið samkvæmt fjárlagafrumvarpinu 2009, eins og það leit út áður en kreppan skall á. Nú sé hins vegar alveg óljóst hvað verði um þær fyrirætlanir. „Við vitum að félagsmálaráðherra hefur staðið vörð um þennan málaflokk en óljóst er hvaða afgreiðslu málið fær hjá Alþingi og fjárlaganefnd," segir Ingibjörg. Ingibjörg segir að það felist í því mikil forvörn að hlúa að börnum með ADHD því að alvarlegir fylgikvillar geti fylgt slíkri taugaþroskaröskun. Mikil hætta sé á að börn með ADHD þrói með sér alvarlegri geðraskanir og jafnvel vímuefnavanda. Þá lendi börnin oft í vandræðum í skólakerfinu. „Rannsóknir hafa sýnt að ofvirk börn eru stærsti streituvaldurinn í starfi kennara," segir Ingibjörg. Hún segir því að með því að draga úr þjónustu við börnin sé einungis verið að skapa samfélaginu meiri kostnað í framtíðinni. Ingibjörg segir að það sé almennt viðurkennt að þörf fyrir þjónustu við ofvirk börn sé mikil á landsbyggðinni. Þessi niðurskurður sé því mjög slæmur. „Mikið álag fylgir því að eiga barn með athyglisbrest og ofvirkni og nú mun álagið aukast enn frekar fyrir fjölskyldur þessara barna á landsbyggðinni og stóraukinn kostnaður fylgir ferðum til að sækja þjónustuna á höfuðborgarsvæðið," segir Ingibjörg.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira