Erlent

Fylla sæti á áhorfendapöllum með sjálfboðaliðum

Júdó er meðal þeirra greina sem ekki hefur verið vel sótt á Ólympíuleikunum.
Júdó er meðal þeirra greina sem ekki hefur verið vel sótt á Ólympíuleikunum. MYND/AP

Kínversk stjórnvöld hafa gripið til þess ráðs að kalla til sjálfboðaliða til að fylla hálftóma leikvanga á Ólympíuleikunum í Peking.

Eftir því sem breska ríkisútvarpið greinir frá hafa kínversk stjórnvöld lýst yfir áhyggjum af því hversu illa viðburðir á leikunum eru sóttir og því hefur verið gripið fyrrgreindra aðgerða.

Háttsettur maður í skipulagsnefnd Ólympíuleikanna segir ýmsa þætti skýra þetta, þar á meðal veðurfarið en mjög heitt og rakt hefur verið í Peking og þá hefur rignt töluverðs. Þá benti hann á að sumir áhorfendur ættu miða á alla leiki í tiltekinni íþróttagrein á tilteknum degi en veldu að sjá aðeins einn leikjanna.

Fram kemur í frétt BBC að greinarnar séu misvinsælar, t.d. hafi verið uppselt á leik Bandaríkjanna og Kína í körfuknattleik karla á dögunum en minni áhugi virðist fyrir júdó, badminton og sundknattleik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×