Sökuðu Kastljós um ófrægingarherferð gegn Jónínu Bjartmarz 12. júní 2008 11:13 Birnir Orri Pétursson og Lucia Celeste Molina Sierra.
Aðstandendur Kastjóss voru sakaðir um að hafa verið í ófrægingarherferð gegn Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, í meiðyrðamáli sem sonur Jónínu og tengdadóttir hafa höfðað vegna umfjöllunar Kastljóss um ríkisborgararétt tengdadótturinnar. Aðalmeðferð í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Birnir Orri Pétursson og Lucia Celeste Molina Sierra, sonur og tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, fara fram á 3,5 milljónir króna í miskabætur frá Páli Magnússyni útvarpsstjóra og Kastljósfólkinu Helga Seljan, Þórhalli Gunnarssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Sigmari Guðmundssyni vegna ærumeiðinga. Kastljós fjallaði um það í lok apríl á síðasta ári að Lucia hefði fengið skjóta afgreiðslu á umsókn um ríkisborgararétt hjá Alþingi en Jónína sagðist ekki hafa komið nálægt afgreiðslu umsóknarinnar. Lucia fer fram á 2,5 milljónir króna en Birnir eina vegna umfjöllunarinnar.Segist hafa verið notuð til að ná til JónínuBæði Lucia og Birnir voru viðstödd aðalmeðferð í morgun. Lucia sagði við skýrslutöku að sér fyndist eins og hún hefði verið notuð til þess að ná til Jónínu Bjartmarz og að markmiðið hefði verið að skaða ráðherrann fyrrverandi. Fólk hefði haldið vegna umfjöllunar Kastljóss að hún hefði fengið ríkisborgarrétt vegna tengsla við Jónínu en ekki vegna eigin ágætis.Lögmaður Ríkisútvarpsins spurði Luciu hvort Jónína hefði hjálpað henni að fylla út umsókn um ríkisborgararétt en því neitaði Lucia. Hún var enn fremur spurð hvort hún hefði rætt við fjölmiðla um málið meðan það var í hámæli og sagðist hún hafa rætt við Stöð 2. Hvorki hún né Birnir hefðu rætt við Kastljós og Kastljósfólk hefði ekki haft samband við þau.Birnir Orri sagði við skýrslutökuna að hann hefði fyrst haldið að einhver misskilningur væri á ferð en síðar hefði komið í ljós að um ófrægingarherferð gegn móður hans væri að ræða. Málið hefði valdið honum áhyggjum og sárindum.Ríkisborgararéttur til þess að koma Luciu til náms í BretlandiSigmar Guðmundsson, aðstoðarritstjóri Katsljóss, var næstur í stúku og var meðal annars spurður um fréttamat Kastljóss. Hann sagði fastar reglur gilda um það hvernig teknar væru ákvarðanir um umfjöllunarefni. Í þessu tilviki hefðu borist ábendingar frá tveimur aðilum sem verið hefðu í stöðu til að vita um málið og þekktu það. Það hefði orðið til þess að Kastljós hefði ákveðið að skoða málið nánar.Þá sagði Sigmar að Jónína Bjartmarz hefði komið í Kastljós vegna málsins og veifað þar bæklingum um mannréttindabrot gegn konum í Gvatemala, þaðan sem Lucia er, þegar raunveruleg ástæða fyrir því að veita Luciu ríkisborgararétt hefði verið sú að koma henni til náms í Bretlandi.Hann tók þó fram að umfjöllun Kastljóss hefði ekki snúist um Luciu heldur starfshætti allsherjarnefndar og þriggja manna undirnefndar hennar sem fjallar um veitingu ríkisborgararéttar. Starfshættir nefndarinnar hafi verið skoðaðir en það hefi reynst erfitt að afla gagna og upplýsinga um störf undirnefndarinnar. „Hún sótti um ríkisborgarrétt og hún má það alveg. Það er hins vegar afgreiðsla þingsins og stjórnsýslunnar sem við vorum að skoða," sagði Sigmar og sagði Kastljósfólk hafa talið að upplýsingarnar ættu erindi til almennings.Ekki reynt að koma höggi á JónínuMYND/Páll BergmannHelgi Seljan, fréttamaður Kastljóss, var einnig spurður út í málið, meðal annars hvort Kastljósfólk hefði íhugað hvort heimildarmaður þeirra væri hugsanlega að brjóta lög. Því svaraði hann neitandi.Þá hafnaði Helgi því alfarið að með umfjölluninni hefði verið reynt að koma pólitísku höggi á Jónínu. Þá væri verið að ráðast gegn flestum stjórnmálaflokkum landsins enda hefði verið fjallað um vinnubrögð allsherjarnefndar. Dómari spurði Helga hvort það hefði haft áhrif í málinu að stutt hefði verið til þingkosninga en því neitaði Helgi alfarið.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira