Gjaldþrot stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins 2. október 2008 21:12
Staðan sem uppi er núna þýðir gjaldþrot stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins og kannski er kominn tími til að flokkurinn fái frí frá stjórnun fjármála landsins. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri - grænna, í umræðum um stefnuræðu ráðherra í kvöld. Katrín benti á að fjármálakreppan hefði leitt í ljós að hnattvæddur kapítalismi hefði ekki eingöngu kosti heldur einnig galla. Vandinn nú væri þó ekki aðeins bundinn við alþjóðafjármálaheiminn heldur væri hann einnig heimatilbúinn. Vinstri - græn hefðu ítrekað bent á þessa staðreynd á undanförnum misserum. Benti Katrín á að skammtímaskuldbindingar bankakerfisins væru 3000 millljarðar og hin almenna skuldsetning hér á landi þýddi alvarlegri kreppu hér. Í fjármálalífinu hefðu menn skammtað sér ótrúlegar fjárhæðir og svo jafnvel gengið út úr bönkunum með þær. Þá hefði verið rekin meðvituð stefna um afskiptaleysi og lögmál markaðarins færð upp á grunnþjónustu. Nú væri svo komið að lögmál markaðarins hefðu tekið völdin af stjórnvöldum. Katrín spurði hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera og benti á að Íslendingar mættu ekki viðhalda kerfi sem hefði aukið á mismunun í samfélaginu. Lífeyrisþegar væru með 130 þúsund krónur á mánuði á sama tíma og fólk hefði tekið sér ofurlaun upp á hundruð milljóna. Tók hún undir með formönnum stjórnarandstöðuflokkanna um að það þyrfti að kalla sama alla hagsmunaaðila til þess að leysa málin. Það gengi ekki að seðlabanki og seðlabankastjóri gerðu eitt og ríkisstjórnin annað. Forsætisráðherra þyrfti að viðurkenna mistök og reyna að greiða úr vandanum. Þá þyrfti að hverfa frá skammtímahugmyndafræði og skapa skýrara regluverk um hinn frjálsa markað. Kannski þyrftu sjálfstæðismenn frí frá fjármálastjórninni því ástandið þýddi í raun gjaldþrot stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Innlent Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Erlent Fleiri fréttir Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Sjá meira