Meisaður eftir sjómannadagsball - myndband 9. júní 2008 09:44 MYND/YouTube
Lögreglumaður á Patreksfirði beitti varnarúða eða meis til þess að yfirbuga mann fyrir utan félagsheimili staðarins þegar lokadansleikur sjómannadagsins fór fram í síðustu viku. Á myndbandi á myndbandavefnum YouTube sést hvar lögreglumenn eru að ræða við manninn og er hann meðal annars beðinn um að leggjast í jörðina. Þegar hann hlýðir því ekki og gengur í burt gengur einn lögreglumannanna á eftir honum með úðann og þegar maðurinn hyggst beina tækinu frá sér sprautar lögreglumaðurinn á hann. Í kjölfarið ræðst maðurinn á lögregluþjóninn og virðist kýla hann. Síðar í myndbandinu sést einn lögreglumannanna, sem reyna að yfirbuga manninn, kýla hann. Ekki náðist í yfirlögregluþjón á Ísafirði í morgun en greint var frá atvikinu í dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum í síðustu viku. Þar segir að maðurinn hafi ráðist á nokkra gesti fyrir utan félagsheimilið þar. „Maðurinn réðst á lögreglumann er reynt var að yfirbuga hann með varnarúða, og fékk lögreglumaðurinn hnefahögg í andlit með þeim afleiðingum að hann slasaðist nokkuð," segir í dagbókinni. Sjónarvottur að atburðum sagði í samtali við Vísi að maðurinn hefði átt í átökum áður en lögreglu bar að garði en að honum hefði verið runninn vígamóðurinn. Hann hefði hins vegar sagt lögreglumönnunum að hann vildi ekki eiga samskipti við einn lögreglumanninn en ástæður þess eru óþekktar. Sá hinn sami beitti úðanum skömmu síðar. Myndbandið má nálgast hér.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira