Erlent

Rússar láta af árásum í Georgíu

Dmitri Medvedev Rússlandsforseti.
Dmitri Medvedev Rússlandsforseti. MYND/AP

Dimitrí Medvedev, forseti Rússlands, hefur ákveðið að aðgerðum hersins gegn Georgíu verði hætt.

Samkvæmt BBC sagðist Medvedev á fundi með embættismönnum í Kreml hafa ákveðið að binda enda á hernaðaraðgerðirnar og þvinga ráðamenn í Georgíu til að gera friðarsamkomulag.

Ákvörðunina segist hann hafa tekið í kjölfarið að öryggi borgara í Suður-Ossetíu sé nú tryggt.

Rétt áður en fréttist af stefnubreytingu Medvedev mun rússneski herinn hafa ráðist á borgina Gori af miklum krafi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×