Erlent

Evrusvæðið í tæknilegri kreppu

MYND/AP

Evrusvæðið er þegar í tæknilegri kreppu og hagvöxtur mun nánast stöðvast á næsta ári, að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Í skýrslu sinni um efnahagsástandið segir Evrópusambandið að þótt aðgerðir til þess að ná stöðugleika á fjármálamörkuðum séu farnar að skila árangri sé ástandið enn alvarlegt.

Búist er við að hagvöxtur lækki úr 1.2 prósentum í ár niður í 0,1 prósent á næsta ári í þeim fimmtán löndum sem hafa evruna sem gjaldmiðil. Því er spáð að hagvöxtur verði aðeins 0,9 prósent árið 2010.

Á evrusvæðinu er búist við að enginn vöxtur verði í þrem stærstu hagkerfunum, í Þýskalandi, Frakklandi og á Ítalíu. Búist er við neikvæðum hagvexti á Írlandi og Spáni.

Ef litið er til allra 27 ríkja Evrópusambandsins er búist við eins prósents niðursveiflu í Bretlandi á næsta ári. Sömuleiðis að samdráttur verði í Eystrasaltsríkjunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×