Erlent

Bandaríkjamenn taka sér Íslendinga til fyrirmyndar í jarðhita

Innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að taka frá mörg þúsund hektara af landsvæði í tólf ríkjum landsins til þess að framleiða orku með jarðhita. Í dag er aðeins brot úr prósenti af orkuframleiðslu Bandaríkjanna fengið með jarðhita en sérfræðingar segja að mögulegt sé að auka það í tíu prósent fyrir árið 2050 þannig að fimm milljón heimili geti nýti sér jarðhitann.

Fréttastöðin MSNBC fjallaði um þetta í gær tekið dæmi af Íslandi sem landi sem sé framarlega í þessum fræðum á heimsvísu. Myndskeiðið þar sem sýnt er frá háhitaparadísinni Íslandi má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×