Erlent

Chavez í innkaupaferð til Moskvu

Hinn litríki forseti Venesúela Hugo Chavez heldur til Moskvu í dag. Chavez er í innkaupaferð og efst á lista hans eru skriðdrekar, loftvarnakerfi og fleiri vopn.

Talið er að Chavez muni panta vopn fyrir um 150 milljarða króna. Hann hefur eytt tvöfaldri þeirri upphæð í vopnakaup í Rússlandi á undanförnum fimm árum. Auk þess mun Chavez nota tækifærið til að ræða við Dimitri Medvedev forseta Rússlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×