Ekki kom til átaka í valdaráninu í Máretaníu 6. ágúst 2008 20:15 Frá Máretaníu. MYND/AFP
Fyrrverandi yfirmaður lífvarða forseta Máretaníu hefur rænt völdum í landinu. Herinn lét til skarar skríða eftir að fjórir hershöfðingjar voru reknir úr starfi í gær. Ekki kom til neinna átaka þegar hermenn handtóku Sidi Abdallahi forseta og Yahya Waqef forsætisráðherra í morgun. Hermenn sáust víða á götum og útsendingar sjónvarps og útvarps voru stöðvaðar um stund. Hinsvegar var birt yfirlýsing frá valdaræningjunum á al-Arabiya sjónvarpsstöðinni í Miðausturlöndum. Var hún kölluð yfirlýsing númer eitt. Þar sagði Abdallahi væri ekki lengur forseti og að brottrekstur hershöfðingjanna hefði verið afturkallaður. Stofnað hefði verið ríkisráð sem Mohamed Abdelaziz hershöfðingi stjórnaði. Hann var einn þeirra sem var rekinn í gær úr stöðu sinni sem yfirmaður lífvarða forsetans. Stjórnarskipti eru ekki fátíð í Máritaníu. Stjórn hins nú fallna forseta tók við árið 2007 af herforingjastjórn sem hafði rænt völdum árið 2005. Máritanía er stórt land, yfir ein milljón ferkílómetra að flatarmáli, eða tíu sinnum stærra en Ísland. Það er að mestu eyðimörk. Malbikaðir vegir eru þar ekki nema um 800 kílómetrar. Íbúar eru um 3.1 milljón. Þeir eru nær allir múslimar. Þeir lifa einkum á fiskveiðum og landbúnaði og námuvinnslu. Olíuvinnsla hófst árið 2006 og er því spáð að hún muni gerbreyta efnahag landsins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira