Forsætisráðherra ræddi „ekkert sérstakt“ á fundi með Björgólfi 30. september 2008 14:13 MYND/Stöð 2 „
Það er ekkert sérstakt sem þar gekk á," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra aðspurður um fund hans með Björgólfi Thor Björgólfssyni og bankastjórum Landsbankans í gærkvöld. Davíð Oddsson seðlabankastjóri kom á fund ríkisstjórnarinnar í morgun.Fjölmiðlar landsins fjölmenntu í Stjórnarráðið í morgun til þess að inna ráðherra eftir tíðindum eftir að Fréttablaðið greindi frá því að Landsbankamenn hefðu fundað með forsætisráðherra í gærkvöld.Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund að ekkert sérstakt hefði farið fram á fundinum. „Ég nota gjarnan tækifærið og spjalla við Björgólf Thor þegar hann er á landinu," sagði Geir og bætti við að það væri ekkert óeðlilegt við það miðað við breytingar á markaði. Hann hefði í morgun átt samtal við forráðamenn allra íslensku bankanna í síma. „Það er bara hluti af því sem ég þarf að gera í minni vinnu," sagði forsætisráðherra.Aðspurður hvort áhugi væri hjá forsvarsmönnum Landsbankans að koma inn í Glitnissamninginn sagðist Geir ekki getað svarað því, forsvarsmenn Landsbankans yrðu að gera það. „Það liggur fyrir að það hefur verið ákveðinn áhugi á því að sameina hér bankastofnanir," sagði Geir og vísaði meðal annars í samruna SPRON og Kaupþings. Þá hefði verið talað um samstarf Landsbankans og Glitnis og auðvitað væri æskilegast að frumkvæði um það kæmi frá markaðnum sjálfum.Ég þarf að tala við fjármálaheiminnGeir vildi ekki greina frá efni fundar síns við Björgólf Thor að öðru leyti en því að þeir hefðu rætt stöðuna í bankaheiminum. Þá sagði hann enga aðra fundi fyrirhugaða en þeir gætu þó brostið á með stuttum fyrirvara. „Ég þarf á því að halda að tala við fjármálaheiminn eins og staðan er. Það vita allir að ástandið er mjög ótryggt í alþjóðlegum fjármálaviðskiptum," sagði Geir. Ákveðið uppnám hefði orðið eftir að Bandaríkjaþing hafnaði björgunarpakkanum svokallaða í gær og var það að mati Geir „fullkomið ábyrgðarleysi" af hálfu þingsins.Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- og bankamálaráðherra var einnig á ríkisstjórnarfundi í morgun og hann sagði sameiningu Landsbankans og Glitnis ekki hafa verið rædda. „Við stöndum bara frammi fyrir því sem gerðist í gær og fyrradag. Glitnir er nú í eigu ríkisins og við vinnum út frá þeirri stöðu," sagði Björgvin. Engir formlegir fundir hefðu verið haldnir á vegum ríkisstjórnarinnar um sameiningu bankanna og taldi Björgvin hana óraunhæfa á þessu stigi.Þá lýsti hann einnig yfir áhyggjum af viðbrögðum bandaríkjaþings við björgunaraðgerðapakka stjórnvalda í Bandaríkjunum.„Ég sá það bara í blöðunum"Davíð Oddsson seðlabankastjóri kom á fund ríkisstjórnarinnar í morgun. Aðspurður sagðist hann hafa farið yfir stöðuna eins og hún hefði verið. Hann sagði enn fremur að fundur forsætisráðherra og Landsbankamanna hefði ekki verið á hans vegum. „Ég sá það bara í blöðunum," sagði Davíð.Davíð var einnig spurður út í fullyrðingar forsvarsmanna Stoða um að Glitni hefði verið rænt. Hann sagðist ekki vilja fjalla um málið á þeim nótum.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira