Lífið

Stefán Karl heiðursgestur á stórleik

„Ég fór í treyju kafteinsins númer 34," segir Stefán Karl sem var heiðursgestur á körfuboltaleik Boston celtics og Utah sem fram fór í gær.
„Ég fór í treyju kafteinsins númer 34," segir Stefán Karl sem var heiðursgestur á körfuboltaleik Boston celtics og Utah sem fram fór í gær.

„Assgoti eruð þið nösk að frétta þetta. Já það er rétt, ég var lukkutrölli Boston celtics í gær og hitti meira að segja í körfuna," svarar Stefán Karl Stefánsson leikari sem fer með hlutverk Trölla í samnefndum söngleik eða „The Grinch" sem sýndur er í Boston. 

 

„Ég hitti liðið og Utah Jazz. Þetta var mikilvægur leikur og þá vantaði jólastemningu." 

 

„Þetta var meiriháttar því ég er Boston celtic-maður af því að Óli bróðir minn elskaði Larry Bird í gamla daga. Hann (Óli) verður alveg pottþétt ánægður með þetta en ég á reyndar eftir að segja honum frá þessu," segir Stefán Karl.







„Það var alveg svakalega gaman að hitta þetta lið og fá að djöflast með þem," segir Stefán Karl.

Er ekki brjálað að gera hjá þér? „Jú það er svolítið mikið að gera og það var frídagur minn í gær. Það eru 13 til 15 sýningar á viku."

 

„Já ég er fjölskyldumaður við erum hérna með tvö ungabörn og tvö stálpuð börn. Fjögur stykki og það er bara alveg stórskemmtilegt."

 

„Við erum bæði þannig, ég og Steinunn, að við viljum hafa nóg „action". Við erum mjög sátt hér í Boston."



Komið þið til Íslands um jólin? „Nei við erum búin að fá nóg af kulda. Við skellum okkur aftur heim til San Diego yfir jól og áramót."

 

„Þetta er búið að taka fjögur ár og nú er loksins eitthvað að fæðast. Þetta tekur tíma," segir Stefán Karl og bætir við: „Skilaðu kveðju til allra heima."














Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.