Tólf mánaða fangelsi fyrir hártoganir 22. desember 2008 10:57
47 ára gamall karlmaður var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Maðurinn réðst á lögreglukonu á gatnamótum Suðurgötu og Selvogsgötu í Hafnarfirði síðasta sumar. Lögreglukonan hlaut nokkra áverka vegna árásarinnar. Maðurinn játaði skýlaust brot sitt en honum var gert að sök að hafa rifið í hár lögreglukonunnar sem var við skyldustörft, stungið fingrum sínum upp í munn hennar, klórað hana í tannholdið og slegið hana með krepptum hnefa í vinstri kjálka. Í kjölfarið hlaut hún opið sár á vör og í munnholi, sem sauma þurfti með nokkrum sporum, og eymsli hægra megin í kjálka og kjálkalið. Með játningu mannsins og öðrum gögnum málsins þótti sannað að hann hefði gerst sekur um brotið. Maðurinn hafði áður hlotið fjögurra mánaða dóm í Hæstarétti en þar af voru þrír mánuði skilorðsbundnir í tvö ár. Með broti þessu rauf hann því skilorð. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot gegn lögreglumanni að störfum eru litin alvarlegum augum. Einnig ber að líta til þess að lögreglukonan er með lýtandi sár á vör, eymsli hægra megin í kjálka og kjálkalið og árásin hefur valdið henni andlegri vanliðan. Varanleg læknisfræðileg örorka var metin 5%. Maðurinn hefur einnig áður ráðist að lögreglumanni og þótti því hæfilegt að dæma hann í tólf mánaða fangelsi.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Sjá meira