Störe á pókermót í Portúgal 14. desember 2008 09:00 Egill gæti hugsanlega tekið við af Daniel Craig sem James Bond miðað við hvernig hann tekur sig út í sérsniðna smókingnum.fréttablaðið/Arnþór „
Þetta er draumur sérhvers pókerspilara, ég er auðvitað byrjaður að æfa enda ætla ég að rúlla þessum köpppum upp," segir Egill „Störe" Einarsson. Einkaþjálfaranum kunna virðast allir vegir færir því hann er á leiðinni á risastórt alþjóðlegt mót í póker um miðjan febrúar. Félagsskapurinn sem Egill verður í er ekki amalegur því góðvinur hans, Auðunn Blöndal, verður einnig meðal þátttakenda. Mótið sem um ræðir er haldið á einu stærsta spilavíti Evrópu, Estoril í Portúgal. Sagan segir að Ian Flemming, höfundur bókanna um James Bond, hafi dvalist þar og fengið hugmyndina að þessum þekktasta leyniþjónustumanni heims sem var ekkert síður lunkinn pókerspilari. Agli líst vel á að halda á slóðir James Bond enda eigi þeir ýmislegt sameiginlegt. Ferðin er farin á vegum veðmálafyrirtækisins Betsson. Fyrirtækið hyggst jafnframt blása til mótaraðar á netinu nú í desember þar sem menn geta unnið sér sæti á glæsilegu pókermóti á skemmtistaðnum Rúbín í Öskjuhlíðinni þann 17. janúar. Sigurlaunin á því móti eru þó ekki peningaseðlar heldur þrír farseðlar með öllu á mótið í Portúgal að verðmæti fimmhundruð þúsund krónur. Engar smáupphæðir eru í boði á mótinu en heildarverðlaunaféð er ein milljón dollara. Sú fjárhæð dreifist á efstu menn en sigurvegarinn fær að launum 236 þúsund dollara eða þrjátíu milljónir íslenskra króna. „Þetta er að fara í vasann hjá mér, ég er íþróttamaður með keppnisskap og ætla mér að sjálfsögðu að vinna þetta." Egill viðurkennir samt sem áður að fyrsta takmarkið sé að komast á lokaborðið þar sem níu spilara heyja lokabardaga um sigurlaunin. „Þá fer þetta auðvitað að snúast svolítið um að hafa heilladísirnar á sínu bandi eins og í öðrum íþróttagreinum," útskýrir pókerspilarinn. Egill segist hafa stundað póker á þriðja ár. Hann viti varla um nokkrun mann sem ekki grípi í spil við og við. Hann er ekki í vafa um hvert sé hans sterkasta vopn. „Þolinmæði, já án gríns, ég er mjög þolinmóður við borðið og bíð eftir réttu tækifærunum. Og svo er ég með all svakalegt pókerfés, það er gjörsamlega ómögulegt að lesa mig." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Próteinskammtur alltaf með í töskunni Lífið samstarf Fleiri fréttir Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Sjá meira