Ósáttur við ummæli Andra Snæs um fall Verzló 10. nóvember 2008 12:58 Hafsteinn Gunnar Hauksson er ósáttur við ummæli Andra Snæs Magnasonar.
Hafsteinn Gunnar Hauksson, formaður Nemendafélags Verzló, er ósáttur við ummæli Andra Snæs Magnasonar rithöfundar um að núverandi efnahagsþrengingar feli í sér fall Verzló. Þessi orð lét Andri Snær falla í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils í gær. Hann sagði að krúttkynslóðin hefði ekki fallið með falli bankanna heldur fremur Group-kynslóðin. „Þetta er fall SUS, Heimdallar, Verzló og viðskiptaháskólanna. Það er svo stór krítískur massi sem er að hrynja núna," sagði Andri og bætti við að undanfarin ár hefðu heilu kynslóðirnar verið framleiddar og látnar læra það sama og tekið síðan próf. „Mér finnst þetta ósanngjarnt og illa vegið að okkar skóla. Andri Snær er vanur að tala kjarkinn í fólk og er jákvæður en nú talar hann ástandið niður þegar hann boðar fall Verzló. Þetta er sérstaklega leiðinlegt fyrir um 1300 krakka á aldrinum 16-20 ára sem eru í Verzló til þess að ná sér í stúdentspróf," segir Hafsteinn og bendir á að lítill hluti nemenda leggi áherslu á viðskiptafræði í námi sínu. Flestir hugsi fyrst og fremst um stúdentsprófið sem gefi frekari möguleika á námi. Hann býður Andra Snæ velkominn í Verzló til að kynna sér skólann. „Við munum taka vel á móti honum og afsanna það að skólinn sé fallandi," segir Hafsteinn.
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Sjá meira