Friður í Kenía ræðst af því hvort tekið verður á spillingu 20. ágúst 2008 13:44 Mwai Kibaki, forseti Kenía, er hér ásamt Desmond Tutu. MYND/AP
Friður í Kenía ræðst af því hvort ríkisstjórnin þar er reiðubúin að takast á við spillinguna sem samfélagið er gegnsýrt af. Þetta segir fyrrum yfirmaður sérstakrar spillingarnefndar í Kenía sem flýði land fyrir þremur árum eftir að hafa birt upplýsingar sem sýndu fram á spillingu á æðstu stöðum. John Githongo sneri aftur heim í gær eftir þriggja ára útlegð sem hann segist hafa verið neyddur í eftir að hafa verið hótað lífláti af ráðherrum í síðustu ríkisstjórn. Hann er kominn heim undir verndarvæng Raila Odinga forsætisráðherra sem myndaði samsteypustjórn með Mwai Kibaki forseta í kjölfar blóðugra óeirða í kjölfar kosninga um síðustu áramót. Githongo sagði við heimkomuna að þörfin fyrir opna og ábyrga stjórnsýslu hefði aldrei verið meiri, Keníumenn myndu fylgjast vel með ríkisstjórninni sem nú sæti og hún yrði metin af verkum sínum. Odinga forsætisráðherra sagði að full þörf væri fyrir Githongo heima fyrir og að stjórn sín væri staðráðin í að takast á við fortíðina af fullri alvöru. Odinga keppti um forsetaembættið við Kibaki á þeirri forsendu að hann myndi útrýma spillingunni í landinu sem kostar ríkissjóðinn í Nairobi milljarða á hverju ári - og hefur gert að verulegu leyti allt síðan Kenía fékk sjálfstæði frá Bretum 1963. Óeirðirnar sem brutust út eftir kosningarnar umdeildu um áramótin beindu kastljósinu að djúpstæðum ágreiningi í landinu um eignarhald yfir landi og gríðarlegu efnahagslegu misrétti.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira