Pólski forsætisráðherrann vill vana barnaníðinga Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. september 2008 13:46 Donald Tusk.
Pólski forsætisráðherrann Donald Tusk segist fylgjandi því að vana barnaníðinga með lyfjagjöf og í raun sé lagaheimildin fyrir hendi. Dómara sé hins vegar ekki skylt að gera dæmdum barnaníðingi að sæta sálfræðimeðferð. Tusk segist vel gera sér ljóst að mannréttindasinnar muni rísa upp til varnar níðingunum. „Ég tel hins vegar ekki að við getum kallað þessa einstaklinga menn, barnaníðingar eru skepnur og ég tel ekki að vörn mannréttinda eigi við í tilfelli þeirra," sagði Tusk í viðtali við Polskie Radio. Ráðamenn í Póllandi íhuga nú að taka upp vönun barnaníðinga sem hluta af refsingu þeirra séu þeir sekir fundnir. Um 850 tilfelli, þar sem kynferðisleg misneyting gagnvart börnum á sér stað, koma upp árlega í Póllandi og er skemmst að minnast nýjasta málsins þar sem faðir hafði nauðgað dóttur sinni skipulega árum saman. Er pólskur almenningur sleginn óhug og raddir um úrbætur sem virka orðnar háværar. Vilja að tekið sé harðar á níðingum Ljóst er að Tusk talar ekki að öllu leyti fyrir daufum eyrum þar sem nýleg pólsk könnun sýnir að 94 prósent Pólverja vilja að tekið sé harðar á barnaníðingum. Í þeirri könnun lýstu 17 prósent sig mótfallin vönun með lyfjagjöf. Lech Kaczynski Póllandsforseti hefur heitið stuðningi sínum við að herða refsilöggjöf er lýtur að barnaníðingum og umboðsmaður pólska þingsins hefur látið í veðri vaka að jafnvel væri réttlætanlegt að beita þessu úrræði einnig þegar um nauðgun gegn fullorðinni manneskju er að ræða. Þá má geta þess að önnur könnun leiddi í ljós að þriðjungur aðspurðra vill taka upp vönun með skurðaðgerð.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira