Erlent

Kínverjar hafa ekki áhuga á að hjálpa öðrum

Óli Tynes skrifar

Það mætti ætla að Kínverjar væru nokkuð ánægðir með 9 prósenta hagvöxt á síðasta ársfjórðungi.

Og með að kínverskir bankar og fjármálastofnanir hafa sloppið við öldurótið í öðrum heimshlutum. Og með að gjaldeyrisvarasjóður Kína er um tvö þúsund milljarðar dollara.

Það var til þessara þátta sem Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands leit þegar hann fór þess á leit að Kína tæki þátt í að styrkja Alþjóða gjaldeyrissjóðinn fyrir þau verkefni sem hann á framundan.

Kínverjar kjósa hinsvegar að líta til þess að hagvöxtur á sama ársfjórðungi á síðasta ári var tæp tólf prósent. Og að eftirspurn eftir kínverskum vörum hefur minnkað.

Minnkandi eftirspurn hefur leitt til bylgju uppsagna og lokana á verksmiðjum a í suðausturhluta landsins.

Kína er náttúrlega gríðarlega stórt landi og fjölmennt. Ríkisstjórnin segir að þjóðarauður landsins sé takmarkaður og þeir verði að einbeita sér að lausnum innanlands.

Og á fundi með fréttamönnum í dag sagði talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins að stærsta framlag Kína til umheimsins væri að halda EIGIN efnahag í góðum vexti og jafnvægi.

Menn ættu því kannski ekki að búast við of miklu af Kína.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×