Erlent

Forsætisráðherra Belgíu biðst lausnar frá starfi sínu

Yves Leterme forsætisráðherra Belgíu hefur beðist lausnar frá starfi sínum aðeins fjórum mánuðum eftir að hann tók við stöðunni.

Ástæðan er að hann náði ekki í gegn fyrirhuguðum endurbótum á stjórnskipulagi landsins. Yves tók við embætti forsætisráðherra eftir níu mánaða stjórnarkreppu í landinu að loknum síðustu þingkosningum þar.

Belgía skiptist í frönskumælandi íbúa og þá sem tala flæmsku og töldu þeir frönskumælandi að breytingarnar á stjórnskipulaginu væru þeim í óhag. Breytingarnar áttu að auka völd sveitarstjórna í landinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×