Innlent

Árásarmanna enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn tveggja manna sem eru grunaðir um rán og líkamsárás á Laugavegi um hálffjögurleytið aðfaranótt sunnudags.

Þá var karl á sjötugsaldri barinn og rændur. Árásarmennirnir eru taldir vera á aldrinum 25-30 ára og af erlendu bergi brotnir. Síðar sömu nótt var tösku rænt af konu á þrítugsaldri sem var á gangi við Hverfisgötu. Þar var sömuleiðis um tvo gerendur að ræða en ekki er vitað hvort þeir eru hinir sömu og höfðu fjármuni af fyrrnefndum manni sem ráðist var á á Laugavegi.

Þeir sem búa yfir upplýsingum sem geta varpað ljósi á málin eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×