Lífið

Anita Briem setti met í áheyrnarprufum

Það þurfti hvorki fleiri né færri en 25 áheyrnarprufur til að sannfæra framleiðendur kvikmyndarinnar Journey to the Center of the Earth að ráða Anitu Briem í eitt aðalhlutverkanna. Þetta upplýsir hún í viðtali við dagblaðið The New Paper í Singapore. Blaðið segir hana þar með hafa slegið met Cameron Diaz, sem þurfti að fara í tólf áheyrnarprufur áður en hún fékk sitt fyrsta bitastæða hlutverk í The Mask.

Anita segir í viðtalinu að henni hafi verið farið að þykja þófið fyndið þegar framleiðendur hringdu í hana viku eftir viku og báðu hana um að mæta í enn eina prufu. Anita segir ástæðuna líklega það að það sé óvenjulegulegt að ráða óþekkta leikkonu í eitt aðalhlutverka í svo stórri mynd.

Hún segist einnig afar stolt af hlutverkinu. Víkingablóðið geri það að hún vilji frekar leika kjarnakvendi en viðkvæmt blóm í neyð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.