Lífið

Grétar Örvars: Samspilið líkt okkur Siggu

Ég lagði mikla áherslu á að koma Friðrik og Regínu vel á framfæri, segir Grétar.
Ég lagði mikla áherslu á að koma Friðrik og Regínu vel á framfæri, segir Grétar.

"Mér fannst þetta bara yndislegt. Bara að þetta skuli hafa náð í gegn og við, allur þessi hópur sem stendur að baki þessu, sem erum búin að vinna gríðarlega mikið að því að ná þessu takmarki að ná að púlla þessu í gegn. Sú vinna sem við höfum öll lagt í þetta hefur greinilega skilað sér," segir Grétar Örvarsson þegar Vísir hafði samband við hann í morgun til að spyrja hvernig stemningin er hjá íslenska hópnum í Belgrad.

Friðrik Ómar og Belgrad Simon Mathew keppandi fyrir Danmörk.

"Á ákveðnum tímapunkti kúvenduðum við framlagi Íslands og settum það yfir á ensku. Þau voru öll mjög vel æfð og öll framsetning og markaðsvinna hefur kannski skilað sér. En ég lagði mikla áherslu á að koma Friðrik og Regínu vel á framfæri. Ég lagði mikið upp úr því að kynna okkur vel fyrir Serbum."

Sigríður og Grétar í Leifsstöð árið 1990.

Regína og Friðrik Ómar stóðu sig frábærlega í gærkvöldi. Þau minntu helst á þig og Siggu Beinteins þegar þið sunguð Eitt lag enn árið 1990 í Zagreb Júgóslavíu þegar þið lönduðuð 4. sætinu?

"Já þetta var á ákveðinn hátt svolítið í takt við það sem við gerðum þá. Samspilið milli þeirra í gær var svipað og við gerðum á sínum tíma."

Hvað er framundan hjá ykkur fyrir úrslitin á morgun? "Dagurinn í dag verður örugglega góður. Nú skín sólin en í gær vorum við með ekta íslenskt veður. Það var rigning og hitinn fór í 15 gráður. Okkur leið eins og við vorum heima á Íslandi. Það var frábært."

 

Regína Ósk á leið í höllina þar sem stanslausar æfingar fara fram.

"Núna erum við bara svona að hóa mannskapnum saman. Fólkið okkar fer að undirbúa sig. Stelpurnar fara í smink og síðan förum við öll aftur út í höll."

"Æfingarnar hefjast klukkan þrjú í dag og við þurfum að vera mætt tveimur klukkustundum áður. Svo er aftur generalprufa í kvöld. Við verðum ekki búin fyrr en uppúr miðnætti í nótt. Síðan verðum við rifin upp eldsnemma í fyrramálið."

Eitt lag enn á YouTube






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.