Slapp úr fangabúðum FARC eftir átta ár Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. október 2008 12:10 Oscar Tulio Lizcano eftir átta ára fangavist í frumskóginum. MYND/AP
Fyrrverandi kólumbískum þingmanni, Oscar Tulio Lizcano, tókst að flýja úr fangabúðum kólumbísku skæruliðasamtakanna FARC um helgina eftir að hafa verið haldið föngnum í átta ár djúpt í frumskógum Kólumbíu. Mjög var dregið af Lizcano þegar hann ræddi við fréttamenn í gær og höfðu langvarandi vannæring og kröpp kjör í fangabúðunum augljóslega sett mark sitt á hann. Það var fyrrverandi FARC-liði sem hjálpaði Lizcano að flýja búðirnar. Sá gengur undir nafninu Isaza og hét Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, því í sjónvarpsviðtali í gær að bjargvættinum yrði launað ríkulega og gefið færi á að setjast að í Frakklandi ásamt fjölskyldu sinni. Slíkt væri í samræmi við þá stefnu kólumbískra stjórnvalda að umbuna uppreisnarmönnum sem hlaupast undan merkjum sínum hjá FARC og hjálpa til við að veita föngum samtakanna frelsi á ný. Talið er að FARC-samtökin haldi um 750 manns föngnum í felubúðum víðs vegar um Kólumbíu en taka fanga er hluti af baráttu samtakanna við kólumbísk stjórnvöld sem staðið hefur í rúm 40 ár. Fjölskylda Lizcano fagnar frelsi hans ákaflega og segist lengi hafa beðið þess að heimta ástvin sinn til baka úr klóm FARC. Sjálfur segist Lizcano varla hafa mælt orð af vörum síðan hann var tekinn höndum í ágúst árið 2000 en verðir fangabúðanna yrtu aldrei á hann. Eina lesefnið sem honum stóð til boða var Ódysseifskviða eftir gríska skáldjöfurinn Hómer hinn blinda.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira