Erlent

Obama sækir í sig veðrið

Obama með Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, fyrir helgi. MYND/AFP
Obama með Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, fyrir helgi. MYND/AFP

Barack Obama forsetaframbjóðandi demókrata sækir í sig veðrið í skoðanakönnunum í Bandaríkjunum. Hann hefur níu prósenta forskot yfir keppinaut sinn John McCain frambjóðanda Repbublikana.

Barack Obama forsetaframbjóðandi demókrata er komin heim úr ferð sinni til Austurlanda nær og Evrópu. Ferðin hefur skilað honum auknu fylgi, ef marka má skoðanakönnun Gallup. Nú hefur Obama níu prósenta forskot á keppinaut sinn John McCain, sem segir Obama hafi engan skilning á veru hersins í Írak.

Obama ætlar að einbeita sér að efnahagsmálum á næstunni og ætlar meðal annars að hitta Seðlabankastjóra Bandaríkjanna, fjármálaráðherrann og milljarðamæringinn Warren buffet






Fleiri fréttir

Sjá meira


×