Innlent

Breskur leigusali óttast að Íslendingur drepi hann

Mark og eiginkona hans hafa sætt ofsóknum frá Halldóri undanfarna mánuði. Mynd/ The Leader newspaper.
Mark og eiginkona hans hafa sætt ofsóknum frá Halldóri undanfarna mánuði. Mynd/ The Leader newspaper.
Bretinn Mark Paul Mayled óttast að Íslendingur sem búsettur er á Spáni uni sér ekki hvíldar fyrr en hann hafi myrt sig og fjölskyldu sína eða komið þeim í fangelsi. Mark segir að Íslendingurinn, sem heitir Halldór Haraldsson, hafi lagt líf sitt og fjölskyldu sinnar í rúst og hafi áreitt þau í fjóra mánuði.

Stöð 2 lýsti í gær frásögn spænska blaðsins Leader af málinu. Þar kom fram að maðurinn hafi auglýst fasteignir Marks sem sínar eigin á heimasíðu sinni. Þegar Mark hafi beðið hann um að láta af þessu og greiða honum skuld vegna ógreiddrar húsaleigu hafi Halldór brugðist ókvæða við og hótað honum öllu illu. Hann hóti sér og allri fjölskyldu sinni. Hann segir að Halldór leggi hendur á konuna sína en hafi kært sig og konuna sína fyrir þau ofbeldisverk sem hann hafi sjálfur framið. Tvisvar hafi lögreglan handtekið hann vegna upploginna saka Halldórs.

„Hann hefur lagt líf okkar í rúst. Þetta reynir augljóslega mikið á hjónabandið mitt. Konan verður að fara aftur til Írlands og hann ógnar börnunum mínum," segir Mark. Hann óttast að Halldór muni reyna að standa við morðhótanir sínar. „Lögreglan hérna segir að hann sé stórhættulegur og hann muni ekki una sér hvíldar fyrr en hann hafi annaðhvort drepið okkur eða komið okkur í fangelsi," segir Mark.

Mark vonar að Halldór verði rekinn aftur til Íslands. Hann tekur skýrt fram að þessi maður sé ekki lýsandi fyrir aðra landa sína. Hann þekki nokkra Íslendinga sem séu öðlingsfólk. „Ég kom til Spánar í leit að betra lífi en þetta er hreint ömulegt," segir Mark svo að lokum.

Þegar Vísir hafði samband við Halldór neitaði hann að tjá sig um málið.








Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×