Erlent

Queen Elizabeth í síðustu siglinguna

Eftir að hafa siglt um heimshöfin í fjörutíu ár kvaddi breska farþegaskipið Queen Elizabeth New York í síðasta skipti í gær.

Skipið hóf siglingar árið 1969. Síðan hefur það siglt tuttugu og sex sinnum umhverfis jörðina og 806 ferðir milli Bretlands og Bandaríkjanna. Samtals hefur drottningin siglt tæpar tíu milljónir kílómetra á ferli sínum.

Endalok hennar verða þau að henni verður breytt í fimm stjörnu hótel í Dubai í Sameinuðu arabisku furstadæmunum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×