Borgarfulltrúar upplýsi um bakhjarla sína 16. desember 2008 21:14 Frá fundi borgarstjórnar í ágúst sl.
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, lagði til á fundi borgarstjórnar í dag að borgarfulltrúar birti upplýsingar um öll fjárframlög til þeirra vegna prófkjara fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar eigi síðar en 28. febrúar næst komandi. Í greinargerð með tillögunni segir Ólafur óviðunandi, ekki síst á tímum mikillar umræðu um spillingu og hagsmunatengsl í íslenskun stjórnmálum, að það sé látið viðgangast að borgarfulltrúar upplýsi ekki þá verktaka, auðmenn eða aðra aðila sem veittu þeim fjárframlög vegna prófkjara. Borgarfulltrúar hugsanlega vanhæfir ,,Þar sem mörg þekkt dæmi eru um að aðilar úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki hafi setið beggja vegna borðsins við einkavæðingu ríkisbankanna, og gerst auðmenn í kjölfarið, hlýtur það að vekja upp spurningar um tengsl þeirra við borgarfulltrúa þessara flokka í áðurnefndum prófkjörum. Ef ýmsir aðrir aðilar, sem hafa komið að mjög svo vafasamri einkavæðingu liðinna ára, tengjast borgarfulltrúum fjárhagslegum böndum, þá eru hinir sömu borgarfulltrúar orðnir vanhæfir til að gegna starfi sínu, því þeir geta þá ekki þjónað þeim hagsmunum almennings ásamt sannfæringu sinni, sem þeim er ætlað að gera," segir í greinargerðinni. Siðareglur borgarfulltrúa nýverið lagðar fram Tillögur að siðareglum fyrir borgarfulltrúa voru lagðar fram á fundi borgarráðs síðastliðin fimmtudag. Samkvæmt þeim er ekki minnst sérstaklega á fjárframlögum í tengslum við prófkjör. Aftur á móti er kveðið á um að kjörnir fulltrúar eigi að forðast hagsmunaárekstra og gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum og virða verkaskiptingu í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Borgarstjórnarflokkar hafa siðareglurnar nú til umsagnar. Tillögunni vísað frá með atkvæðum meirihlutans Tillögu Ólafs var vísað frá með átta atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Samfylkingin sat hjá við afgreiðslu málsins en borgarfulltrúar Vinstri grænna greiddu atkvæði með tillögunni.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira