Erlent

Vitnisburður frá Rosenberg réttarhöldunum áfram leynilegur

Dómari í New York hefur úrskurðað að leynilegur vitnisburður í njósnaréttarhöldunum yfir Julius og Ethel Rosenberg verði ekki gerður opinber

Fá mál vöktu jafnnmikla athygli á síðustu öld í Bandaríkjunum en réttarhöldin yfir Rosenberg-hjónunum. Að lokum voru þau dæmd til dauða og líflátin árið 1953 fyrir njósnir í þágu Sovétríkjanna sálugu.

Börn hjónanna hafa ætíð staðið í þeirri trú að bandarísk stjórnvöldi hafi búið yfir upplýsingum sem geri dómsniðurstöðuna vafasama. Rosenberg-hjónin hafi verið dæmd vegna hinnar gífurlegu kommúnistahræðslu sem heltók bandarískt þjóðfélag á þessum tíma.

Vitnisburðurinn sem hér um ræðir kom frá David yngri bróður Ethel Rosenberg en hann viðurkenndi árið 2000 að hann hefði logið í vitnisburði sínum undir miklum þrýstingi frá ákæruvaldinu. Hann vildi hinsvegar að þessum vitnisburði yrði haldið leyndum.

David var sjálfur dæmdur njósnari og hann sagði við réttarhöldin að Ethel hefði vélritað gögn um kjarnorkuvopn sem síðan voru afhent KGB. Með þessum vitnisburði slapp hann frá því að vera tekinn af lífi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×