Erlent

Offita er vaxandi vandamál í Kína

Offita er nú vaxandi vandamál í Kína og talið er að fimmti hver Kínverji sé of þungur. Fjöldi of feitra Kínverja hefur vaxið eftir því sem velmegun þjóðarinnar hefur aukist á undanförnum árum.

Samkvæmt rannsókn sem birt var í tímaritinu Health Affairs kemur fram að ef kínversk stjórnvöld grípi ekki til aðgerða strax gegn þessu vandamáli sé hætta á að um helmingur Kínverja muni þjást af offitu árið 2028.

Orsök offitu Kínverja er sú sama og hjá Bandaríkjamönnum. Hinir fátækari þegnar landsins borða óhollari mat en hinir og mikið sjónvarpsgláp ásamt lítilli hreyfingu eykur svo enn við vandann






Fleiri fréttir

Sjá meira


×