Innlent

Níræður barnaníðingur áfrýjar

Mál mannsins verður tekið fyrir í Hæstarétti
Mál mannsins verður tekið fyrir í Hæstarétti

Tekin hefur verið ákvörðun um að áfrýja máli tæplega níðræðs manns sem fyrir skömmu var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir að níðast á barnabarni sínu í ellefu ár.

"Þessu verður áfrýjað," sagði maðurinn í samtali við Vísi í morgun. Hann vildi að öðru leiti ekki tjá sig um málið. Unnar Steinn Bjarndal, verjandi mannsins, sagði hins vegar við Vísi í dag að áfrýjuninni hafi ekki verið skilað inn með formlegum hætti en það verður gert á næstu dögum.

Sakborningurinn í málinu er fæddur árið 1918 og verður 90 ára gamall í desember.

Annað barnabarn hans kærði hann einnig fyrir að hafa misnotað sig en það mál reyndist fyrnt og var því látið niður falla.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×